![]() Samtök fjárfestaSamtök fjárfesta er félagsskapur almennra hlutabréfa- og sparifjáreigenda og hefur félagið þann tilgang að gæta hagsmuna fjárfesta gagnvart stjórnvöldum, stjórnmálamönnum, útgefendum hlutabréfa og annarra verðbréfa og fjölmiðlum og öðrum þeim sem áhrif geta haft á hag fjárfesta. Auk þess er samtökunum ætlað að efla áhuga og þekkingu á fjárfestingaleiðum og almennum sparnaði. Úr samþykktum Samtaka fjárfesta Tilgangur Samtakanna er: • Að efla áhuga og þekkingu almennings á mikilvægi frjáls sparnaðar og á leiðum til ávöxt¬unar sparifjár m.a. með fjárfestingum í hlutabréfum og öðrum verðbréfum. |


