Fréttir
01.05.10
Rćđa Vilhjálms Bjarnasonar framkvćmdastjóra á ađalfundi 29.

Fundarstjóri
Góðir félagsmenn
Árið 2009 var viðburðarríkt hjá Samtökum fjárfesta. Árið bar þess merki að það var árið eftir 2008, verkefni ársins voru að sjálfsögðu eftirmálar þess hruns sem varð á fjármálamarkaði.
Rétt er að rifja það upp hver eru markmið Samtaka fjáresta:
 Efla skilning á gildi sparnaðar fyrir einstaklinga og þjóðfélagið í heild.
 Koma fram fyrir hönd hlutabréfa- og sparifjáreigenda gagnvart stjórnvöldum, stjórn¬mála¬mönnum, peningastofnunum, útgefendum hlutabréfa og annarra verðbréfa og öðrum aðilum í ræðu og riti til að sporna gegn hvers konar aðgerðum, sem eru til þess fallnar að rýra hag almennra hlutabréfa- og sparifjáreigenda.
 Knýja á um virkt eftirlit með því að hagsmuna smærri hluthafa í almenningshlutafélögum sé gætt í hvívetna og tryggt að þeim sé ekki mismunað til tjóns af þeim sem fara með stjórn félaga hverju sinni.
 Veita stjórn og stjórnendum almenningshlutafélaga uppbyggilegt aðhald með fyrirspurnum og tillögugerð á aðalfundum, m.a. um starfskjör og kaupréttarheimildir æðstu stjórnenda.
 Hafa vakandi auga með því, að reglur um verðbréfaviðskipti séu virtar m.a. hvað varðar innherjasvik, ekki síst í tengslum við gagnkvæm eignatengsl.
 Kæra ætluð brot á lögum eða reglum eða eftir atvikum reka í eigin nafni eða annarra að reka dómsmál til tryggingar því, að lögbundin réttindi félagsmanna séu virt, m.a. í samskiptum við stjórnvöld.
 Efla samband og samtakamátt hlutabréfa- og sparifjáreigenda m.a. með aðild að alþjóð¬legum samtökum fjárfesta.
Á liðnu ári komu 2 góðir gestir í heimsókn erlendis frá. Það voru þeir William K Black prófessor við Háskólann í Kansas City í Missouri og Thormod Hermansen, fyrrverandi forstjóri Telonor.
William Black er þekktastur fyrir bók sína,“The Best Way To Robe a Bank is to Own One“. William hélt einn fyrirlestur hér þann 10. maí á liðnu ári. Hann ræddi við marga áhrifamenn og ráðherra á meðan á heimsókn hans stóð. Hann er væntanlegur aftur næsta laugardag og mun dvelja hér í næstu viku og flytja tvo fyrirlestra.
Í lok ágúst kom Thormod Hermansen, áður forstjóri Telnor. Thormod Hermansen var ráðgjafi stjórnvalda við endurskipulagningu bankakerfisins og höfundur fyrirkomulags með Bankasýslu ríkisins til að fara með eignarhald á hlut ríkisins í bönkunum eftir endurreisn þeirra.
Sá er hér stendur tók þátt í starfi tveggja nefnda á vegum Viðskiptaráðuneytisins um endurskoðun laga á fjármálamarkaði.
Það var frumvarp til laga um breyting á lögum um fjármálastofnanir. Þar var verkefnið að fjalla um efni sem bent var á í skýrslu Kaarlo Jännäri um veikleika í íslenskum fjármálastofnunum.
Helstu atriði frumvarpsins fjalla um:
• Eigið fé fjármálafyrirtækja
• Veðsetningar og veðtökur á hlutabréfum í fjármálafyrirtækjum
• Heimildir til að stunda óskyldan rekstur.
• Reglur um stórar áhættuskuldbindingar.
• Hæfisskilyrði stjórnenda.
Það var einnig frumvarp til laga um breyting á lögum um verðbréfasjóði. Verkefnið þar var einnig að herða á ákvæðum um eignir verðbréfasjóða. Þar var farið að tillögum Kaarlo Jännäri og fleiri um breytingar.
Síðast en ekki síst reyndi framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta að benda á ranghugmyndir við skattlagningu fjareignatekna í tvö skipti á liðnu ári þegar skattar á fjáreignatekjur voru hækkaðir, fyrst úr 10% í 15% og síðan í 18%.
Læt ég hér fylgja yfirlit um raun skattlagningu fjáreignatekna miðað við mismunandi raunvexti og verðbólgu.
Framkvæmdastjóri hélt fleiri erindi en tölu verður á komið um hrun á fjármálamarkaði á árinu, á höfuðborgarsvæðinu og um allt land. Þar var reynt að benda á hagsmuni sparifjáreigenda í uppbyggingu á fjármálamarkaði. Flestir fundir úti á landi voru haldnir í samstarfi við verkalýðsfélög og kirkjuna. Með í þeim ferðum var Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur.
Framkvæmdastjóri sótti fjóra fundi á vegum Euroshareholders á liðnu ári.
Það er alveg ljóst að baráttumál samtakana eins og þau koma fram í samþykktum þeirra eru enn í fullu gildi og haldið verður áfram að berjast fyrir árangri sviði löggjafar, skattlagningar og annarra þeirra þátta er sparifjáreignendur varða.

sunnudagur 5 september 09 2010
Nýjustu fréttir
William K. Black, professor við háskólann í Kansas City í Missouri...
Daniel Levin lögfræðingur af svissneskum uppruna en búsettur í...
Fundarstjóri Góðir félagsmenn Árið 2009 var...