Daniel Levin lögfræðingur af svissneskum uppruna en búsettur í Bandaríkjunum kom hingað til alnds þann 19. apríl sl og dvaldi hér til 21. apríl.
Hann hélt erindi á vegum Samtaka fjárfesta í Hátíðasal Háskóla íslands þann 20. apríl kl 12 um
Stjórnarfar og forysta lýðræðisríkja:
Hornsteinar farsældar og velferðar.
Nú er skýrslan komin.Hvað þar að breytast í stjórnarfari og stjórnarháttum.
Auk þess hitti Daniel Levin ýmsa íslenska ráðamenn að máli.
Daniel Levin er mjög kunnugur íslenskum málefnum eftir um 30 heimsóknir hingað til lands á liðnum 17 árum
Fyrirlesari: Dr. Daniel Levin
Dr. Daniel Levin hefur verið ráðgjafi ríkisstjórna og stofnana í mörgum löndum um vöxt, viðgang og reglur á fjármálamörkuðum, hrun fjármálastofnana, efnahagsmál og stjórnmál, svo sem skuldaaðlögun, einkavæðingu og úrlausnir deiluefna.
Dr. Daniel Levin veitir forstöðu “Liechtenstein Foundation for State Governance”.

